Velta hugbúnaðarfyrirtækisins Gangverk nam 2.256 milljónum króna árið 2022 og jókst um 48% milli ára. Hagnaður dróst lítillega saman og nam 218 milljónum 2022, samanborið við 298 milljónir 2021. Eigið fé nam 573 milljónum og eignir 936 milljónum.

Kostnaðarliðurinn sem hækkaði mest milli ára var laun og launatengd gjöld, eða um ríflega 600 milljónir, en starfsmönnum fjölgaði um helming þar sem ársverk fóru úr 63 í 95.

Þá keypti Gangverk hugbúnaðarfyrirtækið Zealot í Úrúgvæ sumarið 2023 og samkvæmt ársreikningi tvöfaldast starfsmannafjöldinn við það.

Atli Þorbjörnsson og Ólafur Björn Stephensen eru eigendur Gangverks.