Fjárfestingarsjóðurinn Transition Global I, sem telur Davíð og Ari Helgasyni sem meðstofnendur, hefur sótt yfir 100 milljónir dala, eða yfir 14 milljarða króna, í áskriftarloforð undanfarið ár. Sjóðurinn, sem var formlega kynntur síðasta sumar, fjárfestir í grænum lausnum sem miða að því að snúa við áhrifum mannsins á vistkerfi jarðar.
Í gögnum sem skilað var inn til Verðbréfaeftirlits Bandaríkjanna (SEC) kemur fram að sjóðurinn hafi þegar safnað 103,3 milljónum dala í fjármögnunarlotu þar sem stefnt er að því að sækja allt að 160 milljónir dala.
Samkvæmt heimasíðu sjóðsins hefur Transition fjárfest í tíu fyrirtækjum. Meðal þeirra er Running Tide sem er með starfstöð á Akranesi fyrir rannsóknir og framleiðslu á þörungum til kolefnisbindingar.
„Við viljum vera besti meðeigandi fyrirtækja sem eru að leysa loftlagsvanda eða vinna að sjálfbærni með tækni að leiðarljósi. Við viljum halda áfram að byggja teymi upp og hjálpa þeim. Transition verður vonandi besti meðeigandinn hjá svona fyrirtækjum í Bandaríkjunum og Evrópu,“ sagði Ari í viðtali við Viðskiptablaðið í ágúst sl.
Fréttin er hluti af lengri umfjöllun í Viðskiptablaðinu sem kom út í morgun.