Næsta loftlagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna fer fram í hefst í Bakú í Aserbaíjan þann 11. nóvember næstkomandi en samkvæmt FF7mun fara minna fyrir fulltrúum íslensks atvinnulífs í ár en í fyrra.
Helmingi færri íslensk fyrirtæki skipa viðskiptasendinefnd Íslands í ár. Aðeins níu fyrirtæki verða á COP29 ráðstefnunni í Bakú en alls fóru átján fyrirtæki á COP28 í Dúbaí.
Þátttöku- og viðskiptasendinefndin er leidd af Grænvangi í samstarfi við umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið.
Íslensk fyrirtæki greiða þó sjálf allan kostnað við þátttöku. Í samtali við FF7 segir Nótt Thorberg, forstöðumaður Grænvangs, að margar ástæður geti verið fyrir minni þátttöku í ár, sér í lagi vegna þess að ráðstefnan verður í smærri sniðum í ár.
„Minni þátttaka einskorðast ekki við Ísland því við finnum það m.a. að þátttaka Norðurlandaþjóðanna er minni í ár, bæði þegar kemur að stærð viðskiptasendinefnda en einnig eru til að mynda Finnland og Noregur ekki með eigin skála í ár. Við erum hins vegar strax farin að sjá mikinn áhuga á COP30 á næsta ári, sem verður í Brasilíu. Það getur vel verið að einhver fyrirtæki hafi ákveðið að forgangsraða því þingi fyrir öfluga þátttöku þá,“ segir Nótt við FF7.
Fyrirtækin sem skipa íslensku sendinefndina í ár eru: Carbfix, Carbon Recycling International (CRI), Climeworks, Efla, Landsvirkjun, Orka náttúrunnar, Orkuveitan, Verkís og Bjarni Herrera.
Hægt er að lesa frétt FF7 hér.