Fyrirtæki þarf í dag að leggja út rúma milljón króna til að greiða starfamanni 719 þúsund krónur í mánaðarlaun, sem voru miðgildi launa 2023. Eftir tekjuskatt og lífeyrisgreiðslur fær starfsmaðurinn síðan 522 þúsund krónur útborgaðar.

Af launakostnaði fyrirtækja fer því tæpur helmingur í skatta, lífeyrisgreiðslur og önnur réttindi.

„Í dag, þann 27. júní, byrjar starfsmaður í fullu starfi að fá útborgað fyrir vinnu sína,“ segir í tilkynningu Viðskiptaráðs um niðurstöður nýrrar úttektar á launafleygnum svokallaða, sem er mismunurinn á launakostnaði fyrirtækis og útborgaðra launa starfsmanns.

Umreiknað í fjölda daga fæst niðurstaðan að fyrstu 178 dagar þessa árs hafa farið í að vinna fyrir öðru en útborguðum launum.

„Þannig má segja að starfsmaður sem vinnur allt árið hafi einungis unnið fyrir sköttum, réttindum og lífeyrisgreiðslum frá áramótum til loka gærdagsins – og byrji í dag að vinna fyrir útborguðum launum.“

Hvetja fyrirtæki til að uppfæra launaseðla

Meirihluti launafleygsins fellur á fyrirtækið, eða um 60%. Þar vega þyngst mótframlag í lífeyrissjóð, tryggingagjald og orlof. Um 40% falla síðan á starfsmanninn í formi tekjuskatts, útsvars og lífeyrissparnaðar.

„Allir þessir kostnaðarliðir lækka útborguð mánaðarlaun. Þar skiptir ekki máli hvort þeir séu greiddir af fyrirtækinu eða starfsmanninum.“

Viðskiptaráð hvetur fyrirtæki til að uppfæra launaseðla þannig að allur launafleygurinn sé þar sýnilegur.

„Með þeim hætti getur starfsfólk séð alla liði sem valda því að útborguð laun þeirra lækka, sem eykur gagnsæi og traust. Þá mættu fyrirtæki einnig sundurliða útsvar sérstaklega, svo starfsfólk sjái hve hár hluti skatta fer til ríkis og sveitarfélaga.“

Bent er á að framsetning launaseðla er frjáls á Íslandi, svo lengi sem ákvæði kjarasamninga um upplýsingagjöf séu uppfyllt.

Mörg tækifæri til að flýta útborgunardeginum

Launafleygurinn samanstendur af sköttum, lífeyrisgreiðslum og ýmsum réttindum. Viðskiptaráð bendir á nokkur tækifæri til að draga úr umfangi þessara flokka:

  • Lækkun skatta: Af öllum launum þarf að greiða tekjuskatt, útsvar og tryggingagjald. Lækkun allra þriggja um 1 prósentustig myndi hækka útborguð laun um 19.900 kr. á mánuði.
  • Lækkun skyldulífeyris: Síðustu ár hafa greiðslur í lífeyrissjóði hækkað og eru nú að lágmarki 15,5% af launum. Lækkun skyldubundins lífeyrissparnaðar um 2 prósentustig myndi hækka útborguð laun um 14.500 kr. á mánuði.
  • Afnám desember- og orlofsuppbóta: Í kjarasamningum er kveðið á um að ákveðinn hluti launa skuli vera greiddur á tilteknum tíma árs. Að mati Viðskiptaráðs ætti að afnema þessar eingreiðslur og hækka mánaðarlaun á móti. Það myndi hækka útborguð laun um 13.700 kr. á mánuði.

„Með þessum aðgerðum mætti flýta útborgunardegi næsta árs og gera starfsfólki þannig kleift að byrja fyrr að vinna fyrir útborguðum launum. Hér geta bæði stjórnvöld og aðilar vinnumarkaðar lagt sitt af mörkum.“