Greining Stefnis á kaupréttarsamningum stjórnenda í Kauphöllinni hérlendis bendir til þess að samningarnir séu nokkuð staðlaðir og virðast eiga rætur sínar að rekja til ráðgjafarfyrirtækja.
Jón Finnbogason, framkvæmdastjóri Stefnis, kallar eftir því að stjórnir skráðra félaga hugi betur að því hvernig kaupréttarkerfin séu byggð upp. Kaupréttur er að hans mati langt frá því að vera eina leiðin til að umbuna stjórnendum fyrir vel unnin störf.
Markús Máni Skúlason, hjá markaðsviðskiptum Arion banka, vann greininguna fyrir Stefni sem hluta af svokölluðu útskriftarprógrammi samstæðu Arion banka.
Aðspurður segir hann ljóst að umræðan um kauprétt hérlendis hefur verið afmörkuð og að mestu leyti snúist um vaxtastig nýtingarverðs og umfang kauprétts á meðan aðrir mikilvægir áhrifaþættir hafa fengið minni umfjöllun.
„Til dæmis mætti betur taka tillit til núverandi launastigs stjórnenda í samanburði við sambærileg fyrirtæki hérlendis og á Norðurlöndunum áður en ákvörðun er tekin um að veita kauprétti. Einnig væri ástæða til að leggja mat á hvort kaupréttir séu í raun áhrifarík leið til að tengja saman hagsmuni stjórnenda og hluthafa, eða hvort aðrir kostir bjóði upp á betri lausn,” segir Markús Máni.
Að hans mati ætti jafnframt að meta hvort starfsemi viðkomandi félags kalli í raun á slíkt fyrirkomulag til að halda í lykilstjórnendur með sérþekkingu. Erlendis sé til að mynda mun meiri fjölbreytni í langtíma árangurstengdum greiðslum.
Til að lesa meira
Hægt að er kaupa áskrift að Viðskiptablaðinu, Fiskifréttum og Frjálsri verslun hér.
Verð frá 5.995 kr. á mánuði