Hið opinbera á stærri hlut í stærstu fyrirtækjum landsins en erlendir aðilar og íslenskir lífeyrissjóðir samkvæmt ítarlegri greiningu á eignarhaldi fyrirtækja á lista 500 stærstu, riti Frjálsrar verslunar.

Viðskiptablaðið vann greiningu á eignarhaldi stærstu fyrirtækjanna á listanum eftir bókærðu eigin fé.

Eignarhaldi fyrirtækjanna var flokkað niður í fimm flokka; einkaaðilar, ríkið, sveitafélög, lífeyrissjóðir og erlendir aðilar. Stærsti einstaki flokkurinn er einkaaðilar sem eiga tæplega 35% hlut.

Ríkissjóður á ríflega 20,8% og sveitafélög um 9,4%. Samtals á hið opinbera því 30% hlut í umræddum fyrirtækjum og hlutdeild þess í samanlögðu bókfærðu eigin fé er um 1.350 milljarðar króna. Yfir 60% af eignarhlut hins opinbera má rekja til eignarhalds ríkissjóðs á Landsvirkjun, Landsbankanum og 42,5% hlut í Íslandsbanka. Erlendir aðilar eiga um 19% hlut og íslenskir lífeyrissjóðir ríflega 16% hlut.

Til einföldunar náði úttektin til fyrirtækja með yfir hálfan milljarð í eigið fé, eða alls 366 fyrirtækja. Gera má ráð fyrir að hlutföllin myndu lítið breytast þótt öll fyrirtækin í ritinu yrðu tekin með. Samanlagt eigið fé fyrirtækja í úttektinni í árslok 2023 var ríflega 4.470 milljarðar króna.

Velta fyrirtækjanna nam samtals 4.939 milljörðum króna árið 2023. Til samanburðar voru heildartekjur í viðskiptahagkerfinu án fjármála- og vátryggingastarfsemi 6.835 milljarðar króna árið 2023 samkvæmt tölum Hagstofunnar, en 7.226 milljarðar ef veltu fjármála- og vátryggingafélaga er bætt við. Því má ætla að úttektin nái yfir ríflega 68% af íslenska viðskiptahagkerfinu.

Fjallað er ítarlega um málið í Viðskiptablaðinu sem kom út í morgun. Áskrifendur geta nálgast greinina í heild sinni hér og annað efni úr blaðinu hér.