Hlutabréf hækkuðu í verði í Asíu í dag, en Nikkei vísitalan í Japan hafði hækkað um 2,5% rétt fyrir lokun markaða í Tókýó í dag. Hang Seng vísitalan í Hong Kong hafði hækkað um 1,7% nokkrum mínútum fyrir lok viðskipta. Í frétt Bloomberg kemur fram að hækkunin sé rakin til væntinga um að bandaríski seðlabankinn hækki stýrivexti á næstunni, til að ýta undir hagvöxt. Að auki hækkuðu lánshæfismatsfyrirtæki lánshæfismat sitt á Toyota og Isuzu bílaframleiðendunum. MSCI Asian Pacific vísitalan hækkaði um 1,4%, en engu að síður stefnir í versta mánuð hennar síðan september 2001.