Hlutabréf Icelandair hafa hækkað um rúm 4% í Kauphöllinni í dag í 581 milljón króna viðskiptum eftir að flugfélagið birti nýjar tölur um farþegafjölda í morgun.
Gengi Icelandair hefur verið á stöðugri niðurleið eftir að félagið færði afkomuspá ársins niður um miðjan september, einkum vegna hækkandi olíuverðs.
Samkvæmt uppfærðri afkomuspá gerir flugfélagið ráð fyrir að rekstrarhagnaður (EBIT) verði á bilinu 50-65 milljónir dala sem samsvarar 3,3-4,3% af tekjum. Fyrri spá flugfélagsins gerði ráð fyrir að EBIT-hagnaður yrði á bilinu 4-6% í ár.
Hlutabréf í Icelandair hafa lækkað um tæp 17% síðastliðinn mánuð. Dagslokagengið var 1,39 krónur í gær en stendur nú í 1,46 krónum.
Í tilkynningu félagsins til Kauphallarinnar í morgun kom fram að félagið flutti 416 þúsund farþega í september, sem er 8% fleiri en í sama mánuði í fyrra.
„Það sem af er ári hefur félagið flutt um 3,4 milljónir farþega, 19% fleiri en yfir sama tímabil í fyrra. Farþegar til Íslands voru 175 þúsund, frá Íslandi 49 þúsund, 169 þúsund ferðuðust um Ísland og innan Íslands voru farþegar 23 þúsund,“ segir í tilkynningunni.
Stundvísi félagsins jókst um 10% á milli ára og 81%. Sætanýting var 82,7% og segir flugfélagið að einingatekjur haldi áfram að styrkjast.
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, sagði í tilkynningu að þriðji ársfjórðungur hafi verið stærsti fjórðungur í sögu Icelandair þegar litið er til fjölda flugferða.