Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,9% í 2,6 milljarða króna veltu á aðalmarkaði Kauphallarinnar í dag. Flestu viðskiptin voru með hlutabréf Icelandair sem lækkuðu um 8,3% í 333 milljóna króna veltu. Gengi Icelandair stendur nú í 1,33 krónum á hlut og er á sama stað og í upphafi árs.

Icelandair birti ársuppgjör í gærkvöldi. Icelandair skilaði hagnaði eftir skatta á ársgrundvelli í fyrsta sinn frá árinu 2017. Hins vegar var afkoma fjórða ársfjórðungs undir væntingum en EBIT-afkoma var neikvæð um 7 milljarða króna fjórðungnum.

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, sagði í afkomutilkynningu að krefjandi aðstæður á fjórða ársfjórðungi muni fylgja félaginu inn í fyrsta ársfjórðung og gera megi ráð fyrir að reksturinn á fyrri hluta ársins verði krefjandi. Hann sagðist þó bjartsýnn yfir næsta sumri.

Hlutabréfaverð Play lækkaði einnig um 5,3% í 15 milljóna veltu í dag. Gengi hlutabréfa Play stóð í 7,2 krónu á hlut við lokun Kauphallarinnar en dagslokagengi félagsins hefur aldrei verið lægra frá skráningu í júlí 2021.

Hlutabréf bankanna lækka um meira en eitt prósent

Auk Icelandair þá lækkuðu hlutabréf sex annarra félaga aðalmarkaðarins um meira en eitt prósent í viðskiptum dagsins. Þar á meðal voru allir þrír bankarnir í Kauphöllinni – Arion banki, Íslandsbanki og Kvika.