Breska ríkið hefur hótað málsókn gegn Roman Abramovich, fyrrum eiganda Chelsea, til að tryggja að ágóði af sölu knattspyrnuliðsins renni til Úkraínu. Þetta kemur fram á vef BBC.
Þar segir að 2,5 milljarðar punda frá sölunni sitji enn óhreyfðir á breskum bankareikning sem var frystur eftir innrás Rússa í Úkraínu í febrúar 2022.
Stjórnvöld í Bretlandi vilja að peningarnir renni til mannúðaraðstoðar í Úkraínu en Abramovich hefur sagt að hann vilji að fjármagnið renni til „allra fórnarlamba stríðsins í Úkraínu.“
Tafir á úthlutun fjármagnsins byggjast meðal annars á ágreiningi milli bresku ríkisstjórnarinnar og lögfræðinga Abramovich.
„Ríkisstjórnin er staðráðin í að sjá að ágóðinn af sölu Chelsea renni til mannúðarmála í Úkraínu eftir ólöglega innrás Rússa í Úkraínu. Við erum mjög pirruð yfir því að hafa ekki náð samkomulagi um þetta við Abramovich,“ segir í sameiginlegri yfirlýsingu frá Rachel Reeves, fjármálaráðherra Bretlands, og David Lammy, utanríkisráðherra Bretlands.