Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra veitti í dag Háskólanum í Reykjavík 200 milljóna króna stuðning til fjármögnunar undirbúnings að uppbyggingu á allt að 6.000 fermetra rannsókna- og nýsköpunarhúsi við skólann.

Áætlaður heildarkostnaður við bygginguna er um 3,7-4,6 milljarðar króna og standa vonir til þess að húsið geti orðið tilbúið árið 2025.

Í tilkynningu frá ráðuneytinu segir að húsið sé lykill að frekari sókn HR í rannsóknum og kennslu í tæknigreinum og efli samstarf skólans við atvinnulífið.

„Háskólinn í Reykjavík hefur verið mikill brautryðjandi í tæknigreinum og útskrifar yfir helming allra þeirra sem ljúka háskólaprófi í raunvísinda-, verkfræði- og tæknigreinum (STEM) hér á landi. Skólinn hefur metnað til að auka fjölbreytni námsins og bæta kennslu og rannsóknir,“ segir Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.

Gert er ráð fyrir að húsið verði samnýtt með sprotafyrirtækjum og fyrirtækjum og stofnunum í tækniþróun og rannsóknum. Þannig er til dæmis gert ráð fyrir að áhersla verði lögð á aðstöðu fyrir öflugar byggingarannsóknir.

„Okkur vantar sveigjanlegt verkefnarými og nemendadrifin verkefni eins og smíði keppnisbíla og róbóta fengju stórbætta aðstöðu í slíku húsi. Við viljum hlúa betur að hagnýtu, verktengdu námi og skapa ný tækifæri, bæði hvað varðar þjálfun nemenda, gæði rannsókna og samstarf við atvinnulífið,“ segir Ragnhildur Helgadóttir, rektor HR.

Gert er ráð fyrir að rannsókna- og nýsköpunarhúsið verði á næstu lóð við aðalbyggingu HR, þ.e. við Menntasveig 4, en leyfilegt byggingarmagn þar er 11.300 fermetrar.