Vísitala leiguverðs hækkaði um 1,6% milli mars og apríl. Vísitalan hefur hækkað um 10,7% á ársgrundvelli frá upphafsgildi hennar í maí 2023, að því er kemur fram í frétt á vef HMS.

HMS tók í notkun nýja vísitölu leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu í janúar síðastliðnum en fyrsti útreikningur hennar miðast við maí 2023. Vísitalan sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs en við útreikning hennar er stuðst við leigusamninga síðastliðinna tveggja mánaða.

Vísitala leiguverðs hefur hækkað um 9,8% frá því í maí í fyrra, sem jafngildir 10,7% hækkun á árgrundvelli.

Til samanburðar mældist árshækkun vísitölu íbúðaverðs 6,3% í apríl samkvæmt tölum sem HMS birti í gær.