Icelandair tilkynnir í dag að flugfélagið muni hefja flug til Miami í Flórída. Flogið verður til borgarinnar þrisvar í viku, á þriðjudögum, fimmtudögum og laugardögum, frá 25. október út mars 2026.
Flórída hefur lengi verið vinsæll vetraráfangastaður Íslendinga en Icelandair hefur um áratugaskeið flogið til Orlando.
Í tilkynningu segir að Miami bætist nú við sem 19. áfangastaðurinn í Norður-Ameríku en borgin er þekkt fyrir strendur, menningu og næturlíf.
„Við erum mjög spennt fyrir því að hefja flug til Miami og ég veit að margir Íslendingar munu fagna þessum nýja, sólríka áfangastað í Flórída. Flugleiðin opnar auk þess öflugar tengingar fyrir íbúa Miami til 34 áfangastaða okkar í Evrópu, um Ísland og sömuleiðis fyrir Evrópubúa til Miami,“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair.