Icelandair hóf í gær flug til Pittsburgh í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum. Fyrsta fluginu var fagnað bæði á Keflavíkurflugvelli og við komuna til Pittsburgh. Pittsburgh er sextándi áfangastaður félagsins í Norður-Ameríku og boðið verður upp á fjögur flug í viku til borgarinnar fram til októberloka. Greint er frá þessu í fréttatilkynningu.
Pittsburgh sé önnur stærsta borg Pennsylvaníu. Hún liggi á bökkum þriggja fljóta og sé fyrir vikið kölluð borg brúanna. Borgin hafi upp á margt að bjóða, menningu, fagurgræna almenningsgarða, áhugaverðar söguslóðir, útivist og íþróttaviðburði.
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair:
„Pittsburgh er nýjasta viðbótin við okkar öfluga leiðakerfi og sextándi áfangastaðurinn okkar í Norður-Ameríku. Norður-Ameríku markaður hefur verið mjög sterkur hjá okkur og hafa Bandaríkjamenn fest sig í sessi sem fjölmennastir ferðamanna sem heimsækja Ísland. Pittsburgh flugið fer vel af stað og er ánægjulegt að sjá að farþegar frá 25 Evrópulöndum hafa bókað flug með okkur til Pittsburgh um Ísland og þaðan hafa farþegar bókað flug til 30 áfangastaða Evrópumegin.“
Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia:
„Við á Keflavíkurflugvelli óskum Icelandair til hamingju með nýjasta áfangastað sinn, Pittsburgh, og erum sannfærð um að viðbótin eigi eftir að skila sér margfalt til flugfélagsins og farþega þess. Það er fagnaðarefni í hvert sinn sem nýr áfangastaður bætist við á Keflavíkurflugvelli. Alþjóðasamtök flugvalla, Airport Council International, segja að 10% aukning í flugtengingum auki hagvöxt um 0,5% og það er ekki hvað síst ástæða til að fagna hverri nýrri viðbót okkar öflugu flugfélaga.“