Hluthafar Inkasso ehf. og Momentum ehf. hafa náð samkomulagi um sameiningu félaganna og kemur hún til framkvæmda síðar í þessum mánuði.

„Þar með verður til afar öflugt og framsækið fjártæknifyrirtæki á greiðslu- og innheimtumarkaði, sem mun eins og fyrirrennarar þess, sinna frum- og milliinnheimtu fyrir viðskiptavini sína, og lögfræðiinnheimtu fyrir milligöngu Gjaldheimtunnar,“ segir í fréttatilkynningu.

Sigurður Rúnar Birgisson lögmaður verður áfram framkvæmdastjóri Gjaldheimtunnar en Kristinn Hallgrímsson hrl. verður stjórnarformaður Inkasso-Momentum. Fyrirtækið verður til húsa í Kauphallarhúsinu að Laugavegi 182, Reykjavík.

Samkvæmt fyrirtækjaskrá Skattsins er Skorri Rafn Rafnsson aðaleigandi Inkasso með 94% hlut. Gjaldheimtan, móðurfélag Momentum, er í eigu Kristins Hallgrímssonar, Óskars Norðmanns og Davíðs Gíslasonar.

Guðmundur Magnason, framkvæmdastjóri hins sameinaða félags.

Með sameiningu Inkasso og Momentum verður til feikna öflugt félag með skýr markmið og framtíðarsýn. Gagnsæi, samfélagslega ábyrg innheimta og framsæknar stafrænar lausnir hafa nú þegar skapað fyrirtækjunum sérstöðu á markaði en með sameiningunni verður slagkrafturinn einfaldlega enn meiri. Við hlökkum til að veita viðskiptavinum okkar og greiðendum enn betri þjónustu. Að auki mun sameinað félag nýta fjártækni til að styrkja og auka vöruframboð til að mæta kröfum markaðarins á næstu misserum.

Sameinað fyrirtæki verður til húsa í Kauphallarhúsinu að Laugavegi 182.