InstaVolt hefur hafið vinnu við aðra hraðhleðslustöð sína á Íslandi. Í tilkynningu segir að ákvörðunin hafi verið tekin eftir vel heppnaða opnun á stærstu hleðslustöð landsins í júní við Courtyard by Marriott hótelið við Keflavíkurflugvelli.

Nýi staðurinn verður með fjögur 160 kW hleðslutæki við garðyrkjustöðina Friðheima.

InstaVolt segist einnig vera með áætlanir um að setja upp 200 stöðvar á Íslandi á næstu tveimur árum. Hleðslustöðvarnar við veitingastað Friðheima verða einnig knúnar með 100% endurnýjanlegri orku.

„Það undirstrikar mikilvægt takmark þar sem Ísland leitast við að ná fram markmiðum sínum um að banna skráningu nýrra bensín- og dísilökutækja árið 2030. Um leið er verið að vinna að hleðsluneti rafknúinna ökutækja, bæði fyrir íbúa landsins og ferðafólk, sem er hvatt til þess að ferðast á sjálfbæran hátt um landið,“ segir jafnframt í tilkynningu.