Isavia ohf. hefur tekið tilboði þýska fyrirtækisins Heinemann í rekstur fríhafnarverslana á Keflavíkurflugvelli (KEF) til næstu átta ára. Fjórir aðilar buðu í reksturinn. Isavia segir að tilboðið hafi verið valið út frá fyrir fram ákveðnum valforsendum útboðs.
Heinemann rekur fjölda verslana um allan heim, m.a. fríhafnarverslanirnar á Gardermoen-flugvelli í Osló og Kastrup-flugvelli í Kaupmannahöfn.
„Við vildum kanna hvort hægt væri, með samstarfi við nýjan rekstraraðila með reynslu í rekstri fríhafnarverslana, að tryggja ávinning umfram núverandi fyrirkomulag. Niðurstaðan er sú að með þessari breytingu aukast tekjur flugvallarins verulega um leið og hægt er að auka þjónustu og bæta vöruúrval. Ákvörðunin um töku tilboðsins byggir eingöngu á því mati að þessi breyting skili ávinningi fyrir farþega, flugvöllinn og samfélagið í heild,“ segir Guðmundur Daði Rúnarsson, framkvæmdastjóri viðskipta og þróunar á Keflavíkurflugvelli.
Nú tekur við svonefndur biðtími (e. standstill) næstu tvær vikurnar þar sem þeir aðilar sem urðu af samningnum hafa tækifæri til að gera athugasemdir við niðurstöðuna telji þeir ástæðu til. Að því tímabili liðnu verður gengið til samninga og gert ráð fyrir að Heinemann taki við rekstrinum í mars næstkomandi. Nánari upplýsingar verða veittar um málið að biðtíma loknum.
Lögð áherslu á íslenskar vörur
Gerð var markaðskönnun sem auglýst var á evrópska efnahagssvæðinu í september 2023 og formlegt útboðsferli hófst í kjölfarið. Boðið var út sérleyfi á rekstri fríhafnarverslana sem í dag eru reknar undir merkjum Fríhafnarinnar ehf., dótturfélags Isavia ohf. Útboðið var með sama fyrirkomulagi og þegar boðin er út aðstaða fyrir aðrar verslanir og veitingastaði í flugstöðinni á Keflavíkurflugvelli.
Isavia segir að í útboðsferlinu hafi verið lögð mikil áhersla á að gestir á flugvellinum finni fyrir því og upplifi það hjá nýjum rekstraraðila að þeir séu á flugvelli á Íslandi þegar þeir fari um fríhafnarverslanirnar á KEF.
Guðmundur Daði segir að í útboðinu hafi meðal annars komið fram að ein leið til þess væri að leggja mikla áherslu á íslenskar vörur í fríhafnarverslununum.
Hann segir enn fremur að með áframhaldandi þróun Keflavíkurflugvallar og auknum tekjum til þeirrar þróunar fjölgi tækifærum til að bæta við flugtengingum. Það hafi bein áhrif inn í hagkerfið en Alþjóðasamtök flugvalla í Evrópu (ACI Europe) hafi gefið það út að 10% aukning í beinum flugtengingum auki hagvöxt um 0,5% í viðkomandi landi.
Í tilkynningu Isavia segir að Heinemann sé rótgróið fjölskyldufyrirtæki sem var stofnað árið 1879. Það reki um 500 verslanir í um 100 löndum. Starfsfólk félagsins er ríflega níu þúsund talsins.