Magic Ice ehf., sem rekur bar og gallerí með höggmyndum úr ís á Laugavegi 4-6, hagnaðist um 78 milljónir króna á síðasta ári, samanborið við 128 milljóna hagnað árið áður.

Tekjur námu 256 milljónum króna á árinu og jukust um tíu milljónir milli ára. Norsku hjónin Kirsten-Marie Holmes og Hans-Petter Solvie eru eigendur Magic Ice.

Í lok síðasta árs festi Kirsten kaup á fasteignunum að Laugavegi 4-6 á 1.263 milljónir króna af sjóði í umsjón Kviku banka.

Magic Ice ehf

2023 2022
Tekjur 256 247
Eignir 265 202
Eigið fé 206 128
Hagnaður 78 128
Lykiltölur í milljónum króna.