Íslandsbanki lækkar verðtryggða vexti helstu inn- og útlánaforma um 0,5 prósentustig frá og með 1. september nk. Til að undirstrika mikilvægi langtímasparnaðar þá lækka vextir á sparnaðarformunum Lífeyrissparnaður og Framtíðarreikningur minna eða um 0,25 prósentustig.
Í tilkynningu Íslandsbanka kemur fram að ákvörðun um vaxtalækkun er tekin í ljósi þess að verðtryggðir vextir á markaði hafa farið ört lækkandi undanfarna mánuði og frekari lækkunar er að vænta. Er það mat Íslandsbanka að vaxtaþróunin gefi tilefni til vaxtalækkunar um 0,5 til 1 prósentustig og mun Íslandsbanki því fylgjast náið með vaxtaþróun í framhaldinu með frekari lækkun í huga.