Á sjávarútvegssýningunni í Barcelona í dag var gengið frá kaupum KAPP ehf. á öllu hlutafé í hátæknifyrirtækinu RAF ehf.

KAPP þjónustar fyrirtæki í matvælavinnslu til sjós og lands og sér auk þess um innflutning á kælitækjum. RAF er hátæknifyrirtæki sem sérhæfir sig í vélasmíði, innflutningi og þjónustu á tækjabúnaði fyrir sjávarútveg, fiskeldi og annan iðnað.

Freyr Friðriksson, eigandi KAPP, segir að með þessum kaupum sjái hann mikil tækifæri til frekari vaxtar KAPP. ,,Ég met það svo að sú mikla þekking og reynsla starfsfólks RAF sem og sá vélbúnaður sem fyrirtækið framleiðir muni styrkja KAPP til frekari sóknar í íslenskum sjávarútvegi og fiskeldi," segir Freyr.

Valþór Hermannsson, sem stýrt hefur RAF í tæp 20 ár, segir að sameiginlega munu félögin bjóða enn betri þjónustu, styrkja framleiðslu á vörum fyrirtækjanna og þróa nýjar og spennandi lausnir á komandi árum. Hann segir að engar breytingar verði á starfsmannahaldi RAF eða þeirri þjónustu og búnaði sem RAF hefur boðið viðskiptavinum sínum um árabil

,,Með KAPP munu auknir kraftar losna úr læðing þar sem mikill mannauður og reynsla sameinast í þessum tveimur fyrirtækjum," segir Valþór, sem kemur jafnframt inn í stjórnendateymi KAPP.

,,Eftir 12 ára eignarhald okkar í RAF og góðan rekstur síðustu ára teljum við að núna sé réttur tímapunktur til að selja félagið. Við höfum átt mjög gott samstarf við stjórnendur KAPP á undanförnum árum og samtöl undanfarna mánuði leiddu til að gengið var frá sölu félagsins og erum fullviss um að KAPP sé rétti aðilinn til að taka við keflinu núna," segir Hjalti Halldórsson, annar eiganda RAF undanfarin 12 ár.