Síðasta sýning Íslensku óperunnar á óperunni Brothers eftir Daníel Bjarnason var haldin í gær á Copenhagen Opera Festival í þriggja landa samstarfi ÍÓ, COF og Óperunnar í Malmö.

Að sögn Íslensku óperunnar tókust sýningarnar mjög vel og fengu frábærar viðtökur áhorfenda sem fögnuðu listamönnunum með standandi lófataki á þremur sýningum um helgina í Tunnelfabrikken í Kaupmannahöfn.

„Kór Íslensku óperunnar sem gegnir lykilhlutverki í uppfærslunni var í einu orði sagt stórkostlegur“

„Það var einstök upplifun að fá tækifæri til þess að flytja óperuna í Kaupmannahöfn í því þriggja landa samstarfi sem gerði það mögulegt. Við getum verið mjög stolt af okkar söngvurum og því sem við leggjum af mörkum. Það hefur aldrei verið mikilvægara að standa vörð um þau menningarverðmæti og arfleifð sem Íslenska óperan hefur byggt upp á rúmlega fjórum áratugum og má ekki glatast“ segir Steinunn Birna Ragnarsdóttir óperustjóri Íslensku óperunnar.

Sýningin fékk fimm stjörnur hjá gagnrýnanda sem fór mjög lofsamlegum orðum um verkið, uppfærsluna og flutninginn. Um kór Íslensku óperunnar sagði hann: „Kór Íslensku óperunnar sem gegnir lykilhlutverki í uppfærslunni var í einu orði sagt stórkostlegur“.