Jón Ásgeir Jóhannesson, sem var einn af aðaleigendum Glitnis banka, var meðal þeirra sem tóku þátt í útboði ríkisins á hlutabréfum í bankanum í byrjun mánaðar.
Yfir 31 þúsund einstaklingar fengu úthlutun í tilboðsbók A en hún náði til 86,9 milljarða af 90,6 milljarða söluandvirði útboðsins.
Fjármálaráðuneytið birti um fjögurleytið í gær nafnalista þeirra sem keyptu.
Hámarksúthlutun í tilboðsbók A nam 19.999.927 krónum en tilboð í henni voru ekki skert vegna forgangs almennings.
Alls fengu 1.529 einstaklingar hámarksúthlutun í bók A í útboðinu.
Samkvæmt nafnalista ráðuneytisins keypti Jón Ásgeir fyrir 19.999.926 krónur.
Líkt og Viðskiptablaðið hefur fjallað um var nokkuð um að efnameiri einstaklingar hefðu safnað kennitölum í útboðinu og reynt þannig að tryggja sér stærri hlut á afslætti.
Útboðsgengi í útboðinu var 106,56 krónur á hlut eða sem samsvarar 6,9% afslætti miðað við síðasta dagslokagengi hlutabréfa Íslandsbanka áður en útboðið hófst.
Gengi Íslandsbanka stóð í 118,5 krónum á hlut við lokun Kauphallarinnar í gær og var því 11,2% yfir útboðsgenginu.