Annan daginn í röð var grænt um að litast í Kauphöllinni og hækkaði gengi hlutabréfa allra félaganna tuttugu sem skráð eru á Aðalmarkað. Gengi úrvalsvísitölunnar hækkaði um 2,81% í viðskiptum dagsins og stendur í kjölfarið í 3.073,80 stigum.

Gengishækkun félaga á Aðalmarkaði var á bilinu 1,2% til 4,65%. Fremst í flokki fór Fasteignafélagið Reitir með 4,65% gengishækkun. Fast á hæla fasteignafélagsins kom tryggingafélagið VÍS, en gengi bréfa félagsins hækkaði um 4,30% í viðskiptum dagsins. Þar á eftir kom Icelandair með 4,09% gengishækkun.

Talsverðar gengislækkanir hafa herjað á félög í Kauphöllinni allt frá því að rússnesk stjórnvöld hófu að ráðast inn í Úkraínu. En undanfarna tvo daga hafa Kauphallarfélögin verið að ná vopnum sínum á ný.