Félagið Nýbýlavegur 4-8 ehf. hefur fest kaup á 7.421 fermetra atvinnuhúsnæði að Nýbýlavegi 4, 6 og 8 fyrir nærri 2,2 milljarða króna.
Nýbýlavegur 4-8 ehf. er í eigu Hegra fjárfestingar ehf., félags Jóhannesar Sigurðssonar, og Björns ehf., sem er í eigu hjónanna Péturs Björnssonar og Margrétar Þorvaldsdóttur og fjölskyldu.
Í september á síðasta ári sagði Viðskiptablaðið frá því að hjónin hafi fest kaup á 416 milljóna króna þakíbúð í nýbyggingu úti á Granda í Vesturbæ Reykjavíkur.
Seljandi atvinnuhúsnæðisins að Nýbýlavegi 4-8 er Lundur fasteignafélag ehf. sem er í jafnri eigu Grétars Hannessonar og Hafsteins Hasler.
Verslanir, veitingastaðir og ýmis önnur atvinnustarfsemi er með aðsetur á Nýbýlavegi 4-8 og má þar m.a. nefna Bónus, Tokyo Sushi, Fylgifiska, Lyfju og Serrano.
Í kaupsamningi kemur fram að öll húsnæðin að Nýbýlavegi 4-8 séu þegar í útleigu.
Fréttin birtist fyrst í Viðskiptablaðinu.