Tap upplýsingatæknifyrirtækisins Wise lausnir nam 348 milljónum króna í fyrra, samanborið við 339 milljóna tap árið 2022.

Fyrirtækið keypti allt hlutafé í Þekkingu í fyrra en samkvæmt ársreikningi námu fjárfestingar í eignarhlutum 670 milljónum.

Eignir voru bókfærðar á rúmlega 2,1 milljarð og eigið fé nam 215 milljónum í lok árs 2023 en hlutafé var aukið um 438 milljónir á árinu.