Frá og með 1. maí mun Kjöthöllin loka verslun sinni við Háaleitisbraut og verður öll starfsemin flutt yfir í Skipholt 70. Verslunin hefur um árabil verið starfrækt bæði sem kjötverslun og matvöruverslun en héðan í frá verður starfsemi Kjöthallarinnar einungis tileinkuð kjötmeti.

Eigendur Kjöthallarinnar segjast ekki hafa náð að fá rekstraraðila til að sjá um matvörubúðina. Ákvörðun var því tekin að leigja út rýmið fyrir annars konar starfsemi og færa alla söluna um tæpan kílómetra.

Erfitt umhverfi

Hann segir rekstrarumhverfið fyrir Kjöthöllina í núverandi mynd vera strembið og að erfiðlega hafi gengið að fá einhvern til að taka við rekstri matvöruverslunarinnar. Það sé annaðhvort lítill sem enginn áhugi fyrir starfseminni eða að erfitt sé að treysta þeim sem hafa sótt um.

„Ég þakka bara fyrir að hafa góða heilsu og standa þetta allt“

Sveinn segir að sökum aldurs sé einnig kominn áhugi fyrir því að draga sig í hlé. „Ég er kominn yfir áttrætt og nú vil ég bara fara að hætta þessu. Ég held ég eigi nú líka maka einhvers staðar heima,“ segir Sveinn og hlær.

Kjöthöllin lifir enn

Starfsemi Kjöthallarinnar verður þó að vissu leyti enn í sinni upprunalegri myndi og þrátt fyrir breytingar munu bræðurnir halda áfram að hafa auga með búðinni. „Bróðir minn ætlar að vera eitthvað áfram og ég kannski hjálpa til en mér finnst tími kominn til að fara hægja aðeins á sér. Ég þakka bara fyrir að hafa góða heilsu og standa þetta allt,“ segir Sveinn.

Nánar er fjallað Kjöthöllina um í Viðskiptablaði vikunnar. Áskrifendur geta nálgast greinina í heild sinni hér.