KLAK – Icelandic Startups komst nýlega inn á lista Financial Times og Statista fyrir leiðandi fyrirtæki innan evrópska frumkvöðlageirans. Listinn ber heitið Europe‘s Leading Start-up Hubs 2025 og er þetta í fyrsta sinn sem íslenskt fyrirtæki ratar inn á þann lista.
Félagið segir þetta einstaka viðurkenningu og undirstriki mikilvægi KLAK í íslensku frumkvöðlaumhverfi ásamt því að viðurkenna áhrifamátt þess í alþjóðlegu samhengi.
Á hverju ári framkvæmir Financial Times, í samstarfi við Statista, ítarlega greiningu á yfir 3.000 nýsköpunarmiðstöðvum í Evrópu. Af þeim sem sækja um komast aðeins 150 inn á hinn umrædda lista.
„Þetta er stór áfangi fyrir KLAK og íslenskt nýsköpunarumhverfi. Við höfum lagt okkur fram við að byggja upp sterkan vettvang fyrir frumkvöðla og þessi viðurkenning er sönnun þess að við höfum náð góðum árangri. Það er ómetanlegt að fá slíka viðurkenningu frá jafn virtum alþjóðlegum aðila og Financial Times, og það hvetur okkur til að halda ótrauð áfram og efla starfið enn frekar,” segir Ásta Sóllilja Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri KLAK - Icelandic Startups.
KLAK segist hafa frá upphafi unnið að því að efla sprotaumhverfið á Íslandi með ýmsum verkefnum. Þátttaka í verkefnum á borð við Gulleggið, Startup Supernova, Startup Tourism, Hringiðu og Dafna hefur þá hjálpað ótal frumkvöðlum við að taka næstu skref í sínum rekstri og jafnvel stefna út fyrir landsteinana.
„Að komast á lista Financial Times og Statista er mikil viðurkenning en líka hvatning til að halda áfram að byggja upp öflugt stuðningsnet fyrir frumkvöðla. Við erum afar þakklát þeim sem hafa stutt við starfsemi okkar og hlökkum til að halda áfram að ryðja brautina fyrir næstu kynslóð sprotafyrirtækja á Íslandi.“