Kjarnafæði Norðlenska (KN) gekk frá kaupum á sláturhúsi, kjötvinnslu og verslun B. Jensen á dögunum, samkvæmt Vikublaðinu. Með kaupunum ræður KN nú yfir tveimur stórgripasláturhúsum í Eyjafirði.

Greint var frá því að Kjarnafæði Norðlenska væri langt komið í viðræðum um kaupa á B. Jensen sem rekur sláturhús, kjötvinnslu og verslun við Lónsbakka, við landamæri Hörgársveitar og Akureyrar.

Í umfjöllun Vikublaðsins segir að vegna óvissu um lögmæti búvörulaga vegna dóms Héraðsdóms Reykjavíkur um miðjan nóvember hafi ekki verið gengið frá viðskiptunum fyrr en nú. Hæstiréttur sneri við dómi Héraðsdóms þann 21. maí síðastliðinn.

B. Jensen er fjölskyldufyrirtæki sem stofnað var árið 1968 af hjónunum Benny Albert Jensen og Jónínu Sigurbjörgu Guðjónsdóttir. Núverandi eigendur eru Erik, sonur þeirra hjóna, og eiginkona hans, Ingibjörg Stella Bjarndóttir sem hafa rekið fyrirtækið ásamt börnum sínum.

B.Jensen greindi frá því á samfélagsmiðlum að verslun félagsins verði lokað á föstudaginn, 13 júní. Eigendur og starfsfólk þökkuðu viðskiptavinum fyrir samfylgdina síðastliðin 27 ár.

Rekstrartekjur B. Jensen námu 660 milljónum króna og hagnaður var um 3,4 milljónir króna árið 2023, samkvæmt síðasta birta ársreikningi félagsins. Eignir í árslok 2023 námu 314 milljónum króna og eigið fé var um 52 milljónir króna.

Kjarnafæði Norðlenska velti 12 milljörðum króna árið 2023 og hagnaðist um 403 milljónir króna árið 2023. Eignir samstæðunnar námu 7,2 milljörðum króna í árslok 2023 og eigið fé var um 984 milljónir.

Óheimilt að grípa til aðgerða eftir dóm Hæstaréttar

Kaupfélag Skagfirðinga keypti allt hlutafé Kjarnafæðis Norðlenska í fyrra. Samkeppniseftirlitið beindi þeim skilaboðum til kaupfélagsins og KN eftir ofangreindan dóm Héraðdsóms að stöðva hvers konar aðgerðir eða háttsemi sem gætu farið gegn samkeppnislögum og stofnast höfðu til á grundvelli undanþáguheimilda frá samkeppnislögum.

Í frétt á vef Samkeppniseftirlitsins í kjölfar dómskvaðningu Hæstaréttar segir að búvörulög lög um breytingu á búvörulögum hafi nú lagagildi og eftirlitsstofnuninni sé því ekki heimilt að lögum að grípa til aðgerða vegna samstarfs og samruna kjötafurðastöðva sem reistar eru á gildandi undanþáguheimildum laganna.

Stofnunin sagði brýnt að fyrirliggjandi frumvarp atvinnuvegaráðherra, þar sem lagt er til að felldar verði úr gildi fyrrgreindar undanþáguheimildir frá samkeppnislögum, verði að lögum „hið fyrsta“.