Krambúð hefur verið opnuð í Búðakór, þar sem Nettó var áður til húsa. Í tilkynningu Samkaupa, móðurfélags verslananna, segir að með Krambúð fái íbúar hverfisins sveigjanlegri opnunartíma og aukin þægindi.
Þá verður Ísbúð Huppu opnuð í rýminu í janúar. Um er að ræða tíundu Ísbúð Huppu en fyrirtækið hefur frá stofnun opnað að meðaltali eina ísbúð á ári, aðallega á höfuðborgarsvæðinu en einnig í Borgarnesi og Reykjanesbæ.
„Kórahverfið er hverfi sem hefur verið í mikilli uppbyggingu síðustu ár sem virðist ætla að halda áfram. Íbúar eru að miklu leyti fjölskyldufólk á ferðinni sem við vitum að Krambúðin getur þjónað vel. Síðan er alveg frábært að fá Ísbúð Huppu með okkur í húsið en velgengni Huppu hefur verið mikil síðustu ár enda bjóða þau upp á hágæða vöru sem hentar allri fjölskyldunni,“ segir Haukur Benediktsson, rekstrarstjóri Krambúðarinnar.
Huppuís fagnar tíu ára afmæli
Ísfélagið Huppa, sem stofnað var á Selfossi árið 2013 af hjónunum Gunnari Má Þráinssyni, Telmu Österby Finnsdóttur, Eygló Rún Karlsdóttur og Sverri Rúnarssyni, fagnar nú tíu ára afmæli fyrirtækisins.
Í tilefni af afmælinu kynnir Huppa á næstu dögum nýjar vörur með nýjum bragðtegundum. Einnig hefur Huppa hefur tekið í notkun pöntunarkerfi á vefsíðu Huppu, isbudhuppu.is sem ætlað er að stytta biðraðir í ísbúðunum.

© Aðsend mynd (AÐSEND)
Að sögn Telmu, markaðsstjóra Huppu, hefur nýja kerfið virkað vel og fengið góðar móttökur, einkum vegna þess hve vel hefur tekist til með tímastillingar á framleiðslu og afhendingu til viðskiptavina á umsömdum tíma.
„Við erum auðvitað mjög stolt vegna velgengninnar síðastliðinn áratug og líka af upprunanum. Við erum flest rótgrónir Selfyssingar, fædd og uppalin hér í einu mikilvægasta landbúnaðarhéraði landsins, þar sem eitt helsta mjólkurbúið, Mjólkurbú Flóamanna, tók til starfa í desember árið 1927, fyrir 96 árum. Við eigum sum hver foreldra sem unnu í mjólkurbúinu, nær allan sinn starfsaldur, þannig að það stendur okkur nær. Við erum að vinna með hágæðahráefni, mjólk, rjóma og smjör, og ætlum að halda áfram þessari vegferð sem við höfum verið á sem felst í miklum gæðakröfum og stöðugri vöruþróun,“ segir Telma Österby.