Lilja Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, hefur birt drög að frumvarpi til laga um menningarframlag streymisveitna í samráðsgátt. Með frumvarpinu er lagt til að lögfest verði ný skylda innlendra og erlendra streymisveitna til að greiða svokallað „menningarframlag“ til íslensks samfélags.
Lagt er til að innheimta geti verið í formi fjárframlags og/eða beinnar fjárfestingar:
- skyldu til að greiða fjárframlag til Kvikmyndasjóðs, sem nemi að hámarki 5%* af áskriftartekjum af starfsemi streymisveitunnar á Íslandi á ársgrundvelli.
- skyldu til að fjárfesta með beinum hætti í framleiðslu í innlendu hljóð- og myndefni, í skilningi laganna, fyrir 5% af áskriftartekjum af starfsemi streymisveitunnar á Íslandi á ársgrundvelli.
Ráðuneytið gerir ráð fyrr að áhrif frumvarpsins verði mest á streymisveitur sem fjárfesta lítið eða takmarkað í nýju, íslensku efni. Innlendar streymisveitur fjárfesti þegar í innlendu efni og ef fjárfesting er 5% eða hærra hlutfall af áskriftartekjum á ársgrundvelli þá fellur gjaldtakan niður.
Liður í jafna samkeppnisstöðu innlendra fjölmiðla
Í tilkynningu menningar- og viðskiptaráðuneytisins segir að frumvarpið sé á meðal þess sem lagt er til í nýrri skýrslu starfshóps um gjaldtöku á streymisveitur og tæknifyrirtæki.
„Á síðustu árum hefur samkeppni við alþjóðlegar streymisveitur og samfélagsmiðla haft neikvæð áhrif á rekstrarumhverfi og samkeppnisstöðu innlendra fjölmiðla, sem kemur niður á framleiðslu innlends efnis og veikir þar með stöðu íslenskrar tungu,“ segir í tilkynningunni.
„Markmið frumvarpsins er að efla íslenska menningu og tungu með því að hvetja til fjárfestingar í framleiðslu á innlendu efni sem er að meginhluta á íslensku eða með aðra íslenska skírskotun. Frumvarpið er því liður í að jafna samkeppnisstöðu innlendra fjölmiðla gagnvart erlendum streymisveitum. Þá kann aukin fjárfesting í framleiðslu á innlendu efni að leiða til fleiri atvinnutækifæra fagfólks sem starfar við sjónvarps- og kvikmyndaframleiðslu hér á landi.“