Kristinn Ásgeir Gylfason lögfræðingur hefur stofnað fyrirtækið Scaling Legal sem hefur það markmið að veita sprotafyrirtækjum sérsniðna lögfræðiþjónustu. Þjónustan er sérstaklega hönnuð fyrir fyrirtæki sem ekki hafa þörf fyrir eða getu til að ráða lögfræðing í fullt starf.

Fyrirtæki munu þá geta valið um sveigjanlegar greiðsluleiðir, þar á meðal tímavinnu, fast verð fyrir tiltekin verkefni eða tímakörfusamning sem safnast upp ef hann er ekki fullnýttur.

Kristinn starfaði áður í fimm ár hjá Sidekick Health en þar öðlaðist hann víðtæka reynslu í lögfræðilegum málefnum og persónuverndarmálum. Auk þess hefur hann haldið utan um samningagerð, stjórnun hluthafaskráa, kaupréttarplön, undirbúning stjórnarfunda og önnur verkefni. Kristinn starfaði einnig um árabil sem bílablaðamaður.

„Scaling Legal leggur áherslu á að veita sprotafyrirtækjum upplifun sem líkist því að hafa innanhúss lögfræðing. Þjónustan felur í sér djúpa innsýn í rekstur og starfsemi hvers viðskiptavinar, sem gerir það mögulegt að veita einstaklingsmiðaða ráðgjöf án aukakostnaðar fyrir að læra inn á fyrirtækið. Þetta tryggir að fyrirtækin séu vel undirbúin fyrir fjármögnunarumferðir og vöxt,“ segir Kristinn.

Með stofnun Scaling Legal stefnir Kristinn að því að styrkja sprotafyrirtæki með því að veita þeim aðgang að gæðalögfræðiþjónustu sem er aðlöguð að þeirra sérstökum þörfum og stuðlar að öruggum og skilvirkum vexti þeirra.