Kristrún Frostadóttir alþingismaður tilkynnti rétt í þessu á fundi í Iðnó að hún ætli að bjóða sig fram til formanns Samfylkingarinnar.
Kristrún er 34 ára gömul, hagfræðingur og var kjörin á þing fyrir Samfylkinguna í september 2021. Kristrún
Starfsferill Kristrúnar:
- Starf meðfram hagfræðinámi á skrifstofu seðlabankastjóra 2009–2010
- Hagfræðingur í greiningardeild Arion banka 2011–2012
- Blaðamaður á Viðskiptablaðinu 2013–2014
- Hagfræðingur í vinnuhópi á vegum forsætisráðuneytis 2014
- Sérfræðingur í greiningardeild fjárfestingarbankans Morgan Stanley í New York og Lundúnum 2015–2017
- Hagfræðingur Viðskiptaráðs Íslands 2017
- Formaður verðlagsnefndar búvara í atvinnumálaráðuneyti 2017–2018
- Aðjúnkt við hagfræðideild HÍ 2018–2020
- Aðalhagfræðingur Kviku banka hf. 2018–2021
Logi Einarsson, fráfarandi formaður, hefur tilkynnt að hann muni ekki sækjast eftir formennsku áfram en margir spáðu því að hann myndi hætta í kjölfar kosninganna síðasta haust.
Formenn Samfylkingarinnar frá stofnun eru:
- Margrét Frímannsdóttir 1999-2000 (kölluð talsmaður)
- Össur Skarphéðinsson 2000-2005
- Ingibjörg Sólrún Gísladóttir 2005-2009
- Jóhanna Sigurðardóttir 2009-2013
- Árni Páll Árnason 2013-2016
- Oddný Harðardóttir 2016
- Logi Einarsson 2016-2022