Christine Lagarde, forseti Seðlabanka Evrópu, telur að nú sé að skapast stórt tækifæri fyrir evruna að stimpla sig sinn sem öruggari valkostur á móti Bandaríkjadal sem ein af helstu forðamyntum heims.

Alþjóðlegir fjárfestar hafa á undanförnum mánuðum verið að draga úr vægi dollaraeigna sinna, m.a. vegna tollastefnu Donalds Trumps. Vegna skorts á öðrum augljósum valkostum hafa margir horft til gulls í staðinn, að því er segir í umfjöllun Reuters.

Raunar hafi vægi dalsins af gjaldeyrisforða heims lækkað talsvert á undanförnum árum og stendur nú í 58%. Til samanburðar er evran í kringum 20%.

Lagarde sagði á ráðstefnu í Berlín í gær að breytingar í alþjóðahagkerfinu skapi opnun fyrir evruna. „Evran mun ekki sjálfkrafa öðlast aukinn áhrifamátt, hún þarf að ávinna sér hann.“

Til að tryggja framgang evrunnar þarf Evrópa dýpri fjármálamarkaði með meiri seljanleika, styrkja lagalegar undirstöður sínar og undirstrika skýra afstöðu með frjálsum viðskiptum. Þá þyrfti Evrópa að styrkja varnarmál og hermátt sinn til að styðja við evruna.