Samkvæmt greiningu Hagstofunnar lönduðu íslensk skip tæplega 28 þúsund tonnum af afla í júní sem er 21% minna en í júní árið 2023.
Þá var samdráttur í veiðum á nær öllum botnfisktegundum og uppsjávarafli enginn.
Heildarafli á tólf mánaða tímabili frá júlí í fyrra til júní á þessu ári var tæplega 1,1 milljón tonn sem er 24% minna en aflinn á sama tólf mánaða tímabili ári fyrr.
Í greiningu segir að loðnubrestur sé helsta ástæðan fyrir þessum samdrætti en allar upplýsingar byggjast á upplýsingum Fiskistofu sem berast frá löndunarhöfnum innanlands, útflytjendum afla og frá umboðsmönnum erlendis.