Borgarráð samþykkti í dag að gengið yrði til samningaviðræðna um Toppstöðina í Elliðaárdal við hæstbjóðanda, Hilmar Ingimundarson fyrir hönd óstofnaðs félags, UUT. Hann bauð 420 milljónir í Toppstöðina.
Toppstöðin, Rafstöðvarvegi 4, var auglýst til sölu í byrjun júní. Fimm tilboð bárust í eignina. Næst hæsta tilboðið í húsnæðið átti Landsvirkjun sem upplýsti í sumar um áhuga á að flytja höfuðstöðvar sínar í Toppstöðina.
Fram kemur í tilkynningu á vef borgarinnar að tilboð Landsvirkjunar í Toppstöðina sjálfa hafi hljóðað upp á 300 milljónir króna en tilboðið í heild sinni, sem innihélt einnig tilboð í byggingarrétt og gatnagerðargjöld á sér lóð, var upp á 725 milljónir króna.
„Tillaga UUT hlaut flest stig samkvæmt mati matsnefndar og er meðal annars talin falla vel að hugmyndum Reykjavíkurborgar um sjálfbærni, hönnun, kolefnislosun og önnur umhverfissjónarmið,“ segir í tilkynningu borgarinnar.
„Samkvæmt tillögunni verður húsnæðið gert hæft fyrir útleigu og reist þar miðstöð útivistar sem hýst getur jaðargreinar íþrótta og aðra starfsemi sem stutt getur við eflingu útivistar og tómstunda í Elliðaárdal. Er áætlaður byggingartími frá undirritun samnings og afhendingu þrjú ár.“
Í viðræðum um 3,5 milljarða sölu á Perlunni
Þá á borgin nú í viðræðum um sölu á Perlunni til Perlunnar þróunarfélags ehf, sem verið hefur leigutaki í Perlunni síðastliðin átta ár.
Perlan, ásamt tveimur tönkum, var auglýst til sölu í júlí síðastliðnum. Söluferlinu var skipt í tvö þrep og kveðið á um að lágmarksverð væri 3,5 milljarðar króna. Tveir aðilar skiluðu inn umsókn á fyrsta þrepi en Perlan þróunarfélag ehf. skilaði eitt inn tilboði á öðru þrepi.
Tilboðsverð er 3.507.161.172 krónur en í kauptilboðinu var kveðið á um ákveðna fyrirvara sem borgin er nú með til skoðunar. Borgin segir samningaumleitanir hafa gengið samkvæmt áætlun miðað við eðli og umfang söluandlagsins.
Reykjavík Development hafði betur gegn Kaldalóni um bílastæði í Hörpu
Auk þess auglýsti Reykjavíkurborg til sölu 125 bílastæði í bílastæðakjallara Hörpu í júlí síðastliðnum. Borgarráð heimilaði í dag að gengið yrði frá kaupsamningi við hæstbjóðanda, Reykjavík Development ehf., dótturfélags Arcusar ehf. fjárfestingarfélags Þorvaldar H Gissurarsonar.
„Við söluna var viðhaft tveggja þrepa kerfi og bárust fimm tilboð á þrepi eitt en tvö á þrepi tvö. Kaldalón hf. bauð 750.000.000 krónur og Reykjavík Development ehf. 752.500.000 krónur.
Eftir yfirferð tilboða er talið að tilboð Reykjavík Development ehf. sé hagstæðara hvað varðar fyrirvara í tilboði, greiðslutilhögun og fjárhæð. Málið fer til endanlegrar afgreiðslu borgarstjórnar.”