Inga Sæ­land, félags- og húsnæðis­málaráðherra, skrifaði færslu á sam­félags­miðlum í gær þar sem hún heldur því fram að sveitarfélög fái „hundruð milljóna í auknar útsvars­tekjur“ verði veiði­gjalda­frum­varpið samþykkt.

Þetta mun vera al­rangt en Inga Sæ­land nýtir þó tækifærið í sömu færslu til að saka aðra um „fals“ og „hræðsluáróður“

„Í stað þess að gleðjast yfir því að sveitarfélögin fái hundruði milljóna í auknar útsvars­tekjur með viðbótar og eðli­legum gjöldum fyrir að­gang að auðlindinni okkar og endur­reisn á möl­brotunum inn­viðum sem við fengum í arf frá fyrri ríkis­stjórn nei, ó nei þá hrópa þeir og arga eins og við séum að koma öllu í kalda kol. Ömur­legt að verða vitni að öðru eins," skrifar Inga Sæ­land.

Í frum­varpi ríkis­stjórnarinnar, sem Inga Sæ­land situr í, kemur þó skýrt fram að þetta sé rangt.

Í kafla 5.1.3 um áhrif frum­varpsins á sveitarfélög segir: „Í frum­varpinu eru því ekki lagðar til breytingar sem hafa bein fjár­hags­leg áhrif á tekju­stofna eða út­gjöld sveitarfélaga.“

Til út­skýringar þýðir þetta að útsvars­tekjur sveitarfélaganna aukast ekki með samþykkt frum­varpsins eins og Inga Sæ­land heldur fram.

„Ráðherrann Inga Sæ­land hefur ekki lesið um­deilt frum­varp sem ríkis­stjórnin, sem hún á sjálf sæti í, hefur lagt fram og berst nú fyrir að verði samþykkt sem lög frá Alþingi.

Það sést best á því að ráðherrann hefur nú óvænt blandað sér í opin­berar um­ræður um veiði­gjalda­frum­varp ríkis­stjórnar sinnar og segir á Face­book-síðu sinni,” skrifar Sigurður Kári Kristjáns­son, lög­maður og fyrrum Alþingis­maður.

„Hver sem af­staða okkar er til þessa máls þá hljótum við að geta gert þá kröfu til ráðherra í ríkis­stjórn Ís­lands að þeir lesi eigin frum­vörp, a.m.k. skilji efni þeirra, áður en þeir ryðjast fram á rit­völlinn með þeim hætti sem Inga Sæ­land gerði í kvöld,“ skrifaði Sigurður Kári í gærkvöldi.

Hann segir að þetta hljóti allir að sjá og vera sammála um.

„Allt tal um fals­fréttastíl í um­ræðum um þetta mál ætti kannski að skoða í ljósi þessa fram­lags frá ráðherranum,“ skrifaði Sigurður Kári.