Hvatasjóðurinn Andreessen Horowitz hefur lokað útibúi sínu í London og hyggst draga úr áformum sínum um stóraukna starfsemi í Bretlandi.

Félagið einbeitir sér nú að rafmyntageiranum í Bandaríkjunum í kjölfar embættistöku Donalds Trumps. Þetta kemur fram í grein Financial Times.

Trump undirritaði forsetatilskipun í síðustu viku sem miðar að því að efla rafmyntageirann í Bandaríkjunum. Marc Andreessen og Ben Horowitz, stofnendur sjóðsins, eru dyggir stuðningsmenn nýs forseta og veita honum ráðgjöf um stefnu Bandaríkjanna í tæknimálum.

Haft er eftir Anthony Albanese, rekstrarstjóra a16z crypto sem fjárfestir í rafmyntum og þriðja vefnum [e. web3], á samfélagsmiðlinum X, að ákvörðunin hafi ekki áhrif á trú félagsins á vaxandi hlutverki Bretlands í rafmyntageiranum.

Sjóðurinn myndi áfram fjárfesta í verkefnum um allan heim, þar á meðal í Bretlandi.

„Við höfum ákveðið að beina athyglinni að Bandaríkjunum í ljósi skýrrar stefnubreytingar nýrrar ríkisstjórnar og lokum því útibúi okkar í Bretlandi,“ bætti Albanese við.