Herrafataverslun Birgis, sem staðsett er í Fákafeni 11, verður lokað þann 28. febrúar næstkomandi en verslunin hefur verið starfrækt í hartnær í 32 ár. Birgir Georgsson, eigandi verslunarinnar, segir í færslu á Facebook að þrekið sé búið en hann greindist með Parkinson sjúkdóminn fyrir nokkrum árum.
„Eins og mörg ykkar vita greindist ég með Parkinson fyrir nokkrum árum og nú er þrekið búið. Vegna þessa hef ég ákveðið að loka versluninni þann 28. febrúar,“ skrifar Birgir.
Í tilefni af þessum tímamótum mun herrafataverslunin efna til 60% afsláttar á öllum vörum frá og með 9. febrúar næstkomandi.
„Okkur búðinni langar að bjóða okkar góðu og tryggu viðskiptavinum sem staðið hafa með okkur í hartnær 32 ár, að koma í eina síðustu heimsókn. Það er mörgum sem ber að þakka, ekki síst eiginkonum ykkar sem hafa drifið ykkur á staðinn. Vonandi fæ ég að sjá ykkur sem flest!“