Alþjóðleg lyfjafyrirtæki skipa öll efstu fimmtán sætin á lista yfir þau fyrirtæki sem eiga flest einkaleyfi hér á landi. Níu af þeim fimmtán fyrirtækjum sem eiga flest skráð vörumerki eru einnig alþjóðleg lyfjafyrirtæki. Þetta má lesa úr nýju mælaborði á vef Hugverkastofunnar.
Alls eru skráð tæplega 9.500 einkaleyfi á Íslandi og ríflega 60.000 vörumerki. Hönnunarskráningar eru ríflega 1.400. Ef aðeins er horft til íslenskra aðila eru í gildi 89 einkaleyfi hér á landi, tæplega 7.000 skráð vörumerki og 129 hönnunarskráningar.
Fyrirtæki með flest einkaleyfi á Íslandi
162 |
112 |
88 |
83 |
82 |
79 |
74 |
73 |
64 |
63 |
59 |
58 |
55 |
55 |
52 |
Af íslenskum fyrirtækjum Marel á flest einkaleyfi, ellefu talsins, en þar á eftir koma Össur og Hampiðjan sem eiga hvort um sig tíu einkaleyfi. Actavis á flest skrásett vörumerki eða 479, Ölgerðin Egill Skallagrímsson á 122 og Mjólkursamsalan 93. Flestar hönnunarskráningar eru í eigu einstaklinga.
Þegar horft er til þess hvaðan þau fyrirtæki eru sem eiga flest hugverkaréttindi hér á landi verma bandarísk fyrirtæki toppsætið bæði hvað varðar einkaleyfi og vörumerki. Þýsk fyrirtæki fylgja þeim fast á eftir varðandi hvort tveggja. Flest fyrirtæki sem eiga skráða hönnun eru svissnesk, þá koma íslensk fyrirtæki og bandarísk fyrirtæki eru þar í þriðja sæti.“
Á listanum yfir fyrirtæki sem eiga flestar hönnunarskráningar eru erlendir bíla- og úraframleiðendur áberandi.