Marinó Örn Tryggvason forstjóri og Ármann Þorvaldsson aðstoðarforstjóri nýttu í dag áskriftaréttindi á hlutabréfum í Kviku banka. Þeir keyptu báðir á genginu 7,71 en gengi félagsins var 21,0 við lok markaða í dag.
Marinó keypti 2,33 milljónu hluti í bankanum fyrir rétt tæpar 18 milljónir króna. Ármann keypti 9,66 milljónir hluti fyrir 74,5 milljónir króna.
Gengi Kviku banka hefur lækkað um 21,64% frá áramótum.