Verð á matvöru er nánast óbreytt samkvæmt verðkönnun ASÍ í matvöruverslunum föstudaginn 26. október og laugardaginn 27. október. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag.

Eina verslunin þar sem engar verðbreytingar voru milli þessara daga var Hagkaup. Af þeim vörum sem skoðaðar voru hækkaði verðið mest á iceberg-salati, blómkáli, tómötum og agúrku í Nettó í Mjódd og nam hækkunin 43% milli daga. Myllu-hveitibrauð hækkaði síðan um 12% hjá Krónunni og Holta-kjúklingapylsur um 15% hjá Nóatúni.

Kartöflur í lausu lækkuðu í verði í Nettó, Bíó bú kókosjógúrt lækkaði um 6% hjá Nóatúni og jarðaberja Húsavíkurjógurt um 8% hjá Bónus.