Yfirvöld á Sri Lanka hafa ákveðið að aflétta banni við innflutningi á bílum og verður bannið fjarlægt á morgun, 1. febrúar. Þá verður hægt að hefja innflutning á rútum, vörubílum og vinnubifreiðum á ný og verða fleiri hömlur síðan fjarlægðar á komandi misserum.

Ákvörðunin er talin vera vísbending um að landið sé að ná sér á ný eftir alvarlega efnahagskreppu sem steypti á endanum forseta landsins af valdastóli.

Á vef BBC segir að margir íbúar Sri Lanka bíði hins vegar enn eftir því að yfirvöld fjarlægi innflutningsbannið á einkabílum, sportbílum og þríhjóla tuk tuk-hjólum sem eru almennt notuð sem leigubílar.

Verð á bílum hefur hins vegar hækkað þar í landi vegna skorts á bílum, veikum gjaldmiðli og háum sköttum og spyrja margir sig að því hvort þeir muni hafa almennt efni á nýjum bíl þrátt fyrir afléttinguna.

Árið 2022 glímdi þetta 22 milljóna manna eyríki við mikinn gjaldeyrisskort sem varð til þess að Sri Lanka gat ekki, í fyrsta skipti í sögu sinni, staðið við skuldbindingar sínar við kröfuhafa. Í kjölfarið varð mikill skortur á eldsneyti, mat og lyfjum sem leiddu til mótmæla.

„Innflutningur ökutækja mun ekki aðeins auka ríkistekjur heldur mun einnig koma af stað annarri atvinnustarfsemi eins og bílafjármögnun, sölumennsku, bílaþjónustu og annarri tengdri starfsemi sem skapar störf,“ segir Murtaza Jafeerjee, formaður hugveitunnar Advocata í höfuðborginni Colombo.