Ósar - lífæð heilbrigðis hf., móðurfélag Icepharma og Parlogis, hagnaðist um 796 milljónir króna eftir skatta á síðasta ári, samanborið við 622 milljónir árið áður.
Rekstrartekjur samstæðunnar námu 22,4 milljörðum króna og jukust um 9% frá fyrra ári. Rekstrarhagnaður (EBIT) jókst um 13% og nam tæplega 1,2 milljörðum króna. Ársverk voru 213 samanborið við 200 árið 2023
Eignir Ósa námu 13,5 milljörðum króna í árslok 2024 og eigið fé var um 6,5 milljarðar króna. Eiginfjárhlutfall samstæðunnar var 48,0%.
Móðurfélag Ósa, Eignarhaldsfélagið Lyng ehf., hyggst greiða út 350 milljónir króna til hluthafa vegna rekstrarársins 2024.
Hluthafar Ósa í árslok 2024
Eignarhlutur |
32,5% |
32,5% |
19,1% |
12,8% |
3,2% |