Það féll í grýttan jarðveg hjá Elon Musk, forstjóra Tesla, þegar norski olíusjóðurinn, einn stærsti hluthafi rafbílaframleiðandans, greiddi í fyrra atkvæði gegn rausnarlegum launapakka að andvirði yfir 100 milljarða bandaríkjadala.
Norski viðskiptamiðillinn E24 greindi í morgun frá smáskilaboðum sem fóru á milli Elon Musk og forstjóra norska olíusjóðsins, Nicolai Tangen, en gögnin benda til þess að Musk hafi reynt að beita þrýstingi á Tangen til að styðja launapakkann.
„Þegar ég bið þig um greiða, sem ég geri afar sjaldan, og þú neitar, þá skaltu ekki biðja mig um neitt fyrr en þú hefur lagt þig að minnsta kosti lítillega fram við að bæta fyrir það,” skrifaði Musk í skilaboðum til Tangen í október í fyrra.
Afboðaði sig í kvöldverð hjá Tangen
Nicolai Tangen hafði boðið Musk að taka þátt í ráðstefnu í Osló á vegum olíusjóðsins í apríl 2025. Fyrir ráðstefnuna var Musk boðið í kvöldverð heima hjá Tangen, ásamt hópi áhrifamikilla viðskiptaleiðtoga.
Musk afboðaði komu sína með skýrri yfirlýsingu: „Vinir eru þeir sem sýna sig sem vinir.”
Olíusjóðurinn hefur sjálfur sýnt fjölmiðlum skilaboðin og staðfest að þau tengist beint atkvæðagreiðslunni um launapakkann.
„Tekið til greina og skilið. Sem stór hluthafi stöndum við með þér. Gangi þér vel í öllu.“
Norska fjármálaráðuneytið hafði áður neitað að birta samskipti Musk og Tangen, en eftir endurmat voru þau gerð opinber á grundvelli upplýsingalaga Noregs.
Norski olíusjóðurinn er áttundi stærsti hluthafinn í Tesla, samkvæmt tölum Nasdaq.
Sjóðurinn á 0,95% hlut í fyrirtækinu, metinn á sex milljarða bandaríkjadala, eða um 43 milljarða norskra króna. Olíusjóðurinn er stærsti fjárfestingarsjóður heims með eignir að verðmæti 12.700 milljarða norskra króna.
Í maí 2024 bauð Tangen Musk í kvöldverð heim til sín ásamt Benedetto Vigna, forstjóra Ferrari, en Musk samþykkti upphaflega boðið.
Eftir að sjóðurinn greiddi atkvæði gegn launapakka Musk í júní snerist hugur hans og afboðaði hann komu sína.
Þrátt fyrir að meirihluti hluthafa hafi greitt atkvæði með launapakkanum var hann að lokum stöðvaður af dómara í Delaware-ríki.
„Ert þú að leka skilaboðunum mínum?“
Í október 2024 var greint frá því í nokkrum norskum fjölmiðlum að Musk hefði afboðað sig frá kvöldverðinum án umfjöllunar um persónuleg samskipti Musk og Tangen.
Fjölmiðlaumfjöllunin leiddi til þess að Musk skrifaði Tangen og spurði: „Lekst þú skilaboðunum mínum til fjölmiðla?“
Hann fylgdi spurningunni eftir með skjáskotum af skilaboðum sem hann hafði fengið, þar sem fullyrt var að Tangen hefði „lekið skilaboðunum til fjölmiðla“ og væri „með pólitískan metnað og væri að nota olíusjóðinn sem stökkpall fyrir sjálfan sig.“
Nicolai Tangen útskýrði fyrir Musk að samkvæmt upplýsingalögum Noregs gæti hver sem er óskað eftir opinberum skjölum.
Á þeim tíma hafði þó ekki verið birtur allur samskiptatextinn, þar sem norska fjármálaráðuneytið taldi skilaboðin upphaflega vera einkasamskipti.
„Því miður verður allt sem ég sendi og tek við sjálfkrafa opinbert. Það er í höndum samskiptadeildarinnar, og það er ekki mín ákvörðun. Þeir hafa ekki sent persónulegar athugasemdir þínar, aðeins þann hluta þar sem þú sagðir að þú myndir ekki koma á ráðstefnuna,“ skrifaði Tangen til Musk.