Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar tók formlega við völdum í gærkvöldi á ríkisráðsfundi á Bessastöðum. Er þetta í annað sinn sem Bjarni leiðir en hann var síðast forsætisráðherra í nokkra mánuði árið 2017.

Ýmsar breytingar voru gerðar á ráðherraskipan eftir að Katrín Jakobsdóttir ákvað að biðjast lausnar úr embætti forsætisráðherra og fara í forsetaframboð. Alls færðu fjórir ráðherrar sig um sæti og einn nýr kom inn.

Katrín var forsætisráðherra í tæplega sjö ár.
© Eyþór Árnason (Eyþór Árnason)

Fyrstu lyklaskipti dagsins fóru fram á níunda tímanum þegar Katrín Jakobsdóttir afhenti Bjarna Benediktssyni lyklana að forsætisráðuneytinu.

Bjarni Benediktsson hefur tekið við sem forsætisráðherra.
© Sigurjón Ragnar Sigurjónsson (SigurjonRagn)
© Sigurjón Ragnar Sigurjónsson (SigurjonRagn)

Næst afhenti Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir Sigurði Inga Jóhannssyni lyklana að fjármála- og efnahagsráðuneytinu.

Sigurður Ingi er fjármála- og efnahagsráðherra.
© Eyþór Árnason (Eyþór Árnason)
© Eyþór Árnason (Eyþór Árnason)

Sigurður Ingi afhenti síðan Svandísi Svavarsdóttur lyklana að innviðaráðuneytinu.

Svandís Svavarsdóttir er innviðaráðherra.
© Eyþór Árnason (Eyþór Árnason)
Sigurður Ingi Jóhannsson afhendir Svandísi Svavarsdóttur lyklana að innviðaráðuneytinu 10. apríl 2024.
© Eyþór Árnason (Eyþór Árnason)

Bjarni afhenti því næst Þórdísi Kolbrúnu lyklana að utanríkisráðuneytinu. Er það í annað sinn sem lyklaskipti fara fram milli Bjarna og Þórdísar á yfirstandandi kjörtímabili en Þórdís og Bjarni skiptust á ráðherrastólum í október síðastliðnum.

Þórdís Kolbrún er aftur orðin utanríkisráðherra.
© Eyþór Árnason (Eyþór Árnason)
Bjarni Benediktsson afhendir Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur lyklana að utanríkisráðuneytinu 10. apríl 2024.
© Eyþór Árnason (Eyþór Árnason)

Loks fékk Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir lyklana að matvælaráðuneytinu afhenta af Svandísi Svavarsdóttur. Bjarkey kemur þar með ný inn en hún var fyrir varaformaður þingflokks Vinstri grænna.

Bjarkey Olsen kemur ný inn og er matvælaráðherra.
© Eyþór Árnason (Eyþór Árnason)
Svandís Svavarsdóttir afhendir Bjarkey Olsen Gunnarsdóttur lyklana að matvælaráðuneytinu 10. apríl 2024.
© Eyþór Árnason (Eyþór Árnason)

Annað ráðuneyti Bjarna Benediktssonar skipa:

  • Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra
  • Sigurður Ingi Jóhannsson, fjármála- og efnahagsráðherra
  • Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra
  • Svandís Svavarsdóttir, innviðaráðherra
  • Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra
  • Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, utanríkisráðherra
  • Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra
  • Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra
  • Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
  • Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra
  • Guðrún Hafsteinsdóttir, dómsmálaráðherra
  • Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, matvælaráðherra
Önnur ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar.
© Aðsend mynd (AÐSEND)