Ný bókunarsíða hefur farið í loftið undir heitinu Huts.is en vefsíðan sérhæfir sig í ferðamannabókunum fyrir fjallaskála. Síðan sameinar fjölmarga fjallaskála víðs vegar um landið og gerir ferðalöngum kleift að bóka gistingu á einum stað.
Vefsíðan kemur til með að innihalda skála sem eru bæði í eigu ferðafélaga, sveitafélaga og einkaaðila. Verkefnið er sagt vera skref í átt að auknum sýnileika og sjálfbærni á hálendinu.
„Markmiðið með huts.is er að einfalda fólki að komast í skála sem sumir hverjir voru nánast faldir. Okkur fannst tímabært að skapa lausn sem þjónar bæði gestum og rekstraraðilum með nútímalegum hætti,“ segir Skúli H. Skúlason, framkvæmdastjóri huts.is.
Fyrstu skálarnir eru þegar komnir inn á síðuna en á næstu vikum og mánuðum munu fleiri skálar bætast við. Á næstunni verður einnig opnað fyrir svokallað skálakort sem gerir ferðafólki kleift að skipuleggja margra daga ferðir á milli skála.