Nýherji hefur valið Örugga greiðslusíðu Valitor fyrir móttöku á öllum helstu kortategundum í netverslun sinni, netverslun.is að því er kemur fram í tilkynningu.
Örugg greiðslusíða Valitor gerir Nýherja kleift að taka við kreditkortagreiðslum á vefnum án þess að búa yfir upplýsingum um kortanúmer og þurfa að uppfylla öryggiskröfur um meðhöndlun kortaupplýsinga á vefnum.
Þess í stað eru kortaupplýsingar meðhöndlaðar á dulkóðuðu og öruggu vefsvæði Valitor og aldrei aðgengilegar þriðja aðila. Þessi háttur eykur enn frekar öryggi í netviðskiptum.
Í netverslun Nýherja geta viðskiptavinir fundið alla almenna söluvöru og pantað hana milliliðalaust. ,,Þeir geta skoðað vörulýsingu og verð og séð hvort varan er til á lager. Þá geta viðskiptavinir skoðað kjör sín á þeim vörum sem þeir ætla að panta“ segir Emil Einarsson framkvæmdarstjóri sölusviðs Nýherja. Emil segir jafnframt að sérstakur afgreiðsluferill hafi verið útbúinn fyrir netverslunina til að tryggja hraða afgreiðslu og rekjanleika pantana segir i tilkynningu.
„Það er Valitor sérstaklega ánægjulegt að öflugt og rótgróið fyrirtæki eins og Nýherji hafi valið Örugga greiðslusíðu fyrir sína netverslun,“ segir Sigurhans Vignir, framkvæmdastjóri Fyrirtækjalausna Valitor í tilkynningu.