Neytendastofa hefur lagt 750.000 króna stjórnvaldssekt á rekstraraðila Nýju Vínbúðarinnar ásamt því að félaginu var gert að greiða 100.000 krónur í dagsektir vegna brota gegn ákvörðun Neytendastofu.
Stofnunin segist hafa komist að þeirri niðurstöðu að framsetning verðupplýsinga á vefsíðu Nýju Vínbúðarinnar væri til þess fallin að neytendur teldu að þeir væru að kaupa vörur á tilboðsverði.
„Með framsetningu verðupplýsinga og með því að tilgreina ekki hvað sé átt við með fullyrðingunni „allt að 40% ódýrara“ hafi rekstraraðili Nýju Vínbúðarinnar veitt villandi upplýsingar um verð og annað verðhagræði auk þess sem fullyrðingin var ekki sönnuð,“ segir í tilkynningu.
Rekstraraðili Nýju Vínbúðarinnar hafi sömuleiðis brotið gegn ákvæðum laga með því að auglýsa takmarkað magn, án þess að tiltaka hvaða vörur það eigi við um eða hve mikið magn sé í boði.
Neytendastofa hafði bannað rekstraraðila að viðhafa ofangreinda viðskiptahætti en varð vör við að ekki voru gerðar breytingar á heimasíðu Nýju Vínbúðarinnar og því hafi ekki verið farið að ákvörðun stofnunarinnar.