Léttitækni ehf. hefur verið í eigu Jakobs J Jónssonar og Katrínar Líndal síðastliðin 29 ár. Nú er komið að tímamótum hjá fyrirtækinu og hefur reksturinn verið seldur til nýrra eigenda, að því er kemur fram í fréttatilkynningu.
Nýju eigendurnir eru Jóhann S Jakobsson og Bergþóra I Sveinbjörnsdóttir en þau tóku við rekstrinum 1. júlí síðastliðinn.
Jóhann og Bergþóra segjast stefna að því að halda áfram því góða starfi sem fyrri eigendur og starfsfólk hafa haldið uppi með einhverjum breytingum sem fylgja kynslóðaskiptum af þessu tagi.
Jóhann tekur við framkvæmdastjórastöðu af Jakobi, sem verður áfram í vinnu hjá Léttitækni við hin ýmsu störf.
Léttitækni hefur tekið nokkrum breytingum í gegn um árin, frá því að vera dekkja- og járnsmíðaverkstæði með lítilsháttar innflutningi yfir í sérhæft innflutningsfyrirtæki á sviði hjálpartækja alls atvinnulífsins með stuðningi járnsmíðaverkstæðis í Húnabyggð. Félagið velti 252 milljónum króna á síðasta ári.
Starfsstöðvar Léttitækni verða í Reykjavík og Húnabyggð ásamt skrifstofu á Skagaströnd.