Fyrir nokkru fór í loftið nýr vefur, bazaar.is , þar sem Íslendingar geta auglýst til sölu notaðar vörur sínar. Viðskipti með notaðar vörur á netinu hafa færst mikið í vöxt á undanförnum árum í löndunum í kringum okkur, auk þess sem oft hefur mátt sjá auglýsingar fyrir slíkar vörur á vefsvæði Barnalands og hefur fólk auglýst allt frá barnavörum til bíla á þeim vef.

„Við viljum auðvelda Íslendingum að nýta hluti betur, til dæmis með því að selja vörur, m.a. fatnað, sem þeir hafa ekki lengur þörf fyrir en sem eru samt í góðu ástandi. Eins getur fólk komið eigin framleiðslu á framfæri á markaðstorginu,“ segir Andri Persson, annar aðstandenda bazaar.is. Andri stofnaði vefinn í félagi við Bolla Þór Khajeh, frænda sinn, en þessir ungu athafnamenn eru búsettir í Kaupmannahöfn og eiga báðir rætur að rekja til annarra landa. Andri er danskur í aðra ættina og Bolli Þór persneskur. Orðið bazaar er til í flestum tungumálum en eins og einhverjum kannski er kunnugt er það komið úr persnesku og þýðir einfaldlega markaðstorg.

Danskur fjárfestir

Þeir Andri og Bolli hafa fengið danskan fjárfesti til liðs við sig, þó ekki sé fjárfestingin mjög stór enn sem komið er. „Honum leist vel á verkefnið og taldi það sniðuga fjárfestingu, sérstaklega ef (þegar) þetta verður mjög stórt,“ segir Andri. „Það hefur verið mikið í umræðunni hér í Danmörku hvað netsíður/netfyrirtæki eru orðin verðmæt og eru að seljast fyrir gríðarlegar upphæðir,“ bætir hann við.

„Hann veit að Ísland er illa statt fjárhagslega en hefur trú á því að Íslendingar muni vinna sig upp úr vandanum og fannst því tilvalið að fjárfesta í fyrirtæki sem stuðlar að hagsýni, sparnaði og aukinni umhverfisvitund,“ heldur Andri áfram.

Auglýsingar á netinufærst í vöxt

Hugmyndin að bazaar.is kviknaði að sögn þeirra Andra og Bolla Þórs þegar þeir tóku eftir því að neysluhegðun fólks hefur breyst á undanförnum árum. Þeir segja fólk orðið hagsýnna en áður og meðvitaðra um umhverfisvæna lífshætti. Eins og áður segir hefur það tíðkast á undanförnum árum að auglýsa notaðar vörur til sölu á Barnalandi og segjast þeir Andri og Bolli hafa tekið eftir því að auglýsingar á samskiptavefjum hafi færst í vöxt. „Þetta voru auglýsingar sem náðu kannski aðeins til fámennra vina- og kunningjahópa. Því ákváðum við að reisa markaðstorg á netinu. Sameina þessar auglýsingar á netinu á einum stað þar sem viðskiptin eru aðgengileg, auðveld og skilvirk auk þess að vera ókeypis.“

„Það er von okkar að bazaar. is verði afl í þeirri hagsýnu tískubylgju sem er allsráðandi í Danmörku og um Evrópu alla,“ segir Bolli Þór.